Ytri-Varðgjá Hótel, Eyjafjarðarsveit
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð bygging hótels Ytri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér, ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og svörum framkvæmdaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. október 2023.