Vinnsluhola NJ-34 við Nesjavallavirkjun, Grímsnes- og Grafningshreppi
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð vinnsluhola NJ-34 við Nesjavallavirkjun, Grímsnes- og Grafningshreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Gögn málsins eru aðgengileg á Skipulagsgáttinni og í gagnagrunni Skipulagsstofnunar.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 15. apríl 2024.