Vegur meðfram Hverfjalli, Skútustaðahreppi
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að vegur vestan Hverfjalls ásamt bílastæðum skuli ekki háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. júlí 2018.