Uxahryggjavegur milli Brautartungu og Kaldadalsvegar, Borgarbyggð og Bláskógabyggð
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Uxahryggjavegur milli Brautartungu og Kaldadalsvegar, Borgarbyggð og Bláskógabyggð, skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar ásamt gögnum málsins eru aðgengileg í Gagnagrunni umhverfismats og á Skipulagsgátt
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 2. ágúst 2024.