Tinhella 8, móttaka og vinnsla brotamálms, Hafnarfjarðarbæ
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að móttaka og vinnsla brotamálms, Tinhellu 8, Hafnarfjarðarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 12. ágúst 2019.