Tilraun Carbfix á Nesjavöllum
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að tilraunaföngun og -förgun á koldíoxíði og brennisteinsvetni frá Nesjavallavirkjun í Grímsnes- og Grafningshreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Hér má skoða ákvörðun Skipulagsstofnunar.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 26. apríl 2021.