Þjónustumiðstöð, gisting og tjaldsvæði að Selhöfðum í Þjórsárdal
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging þjónustumiðstöðvar, gistihýsa og tjaldsvæðis að Selhöfðum í Þjórsárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér ásamt greinargerð framkvæmdaraðila, umsögnum umsagnaraðila og viðbrögðum framkvæmdaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. mars 2024.