Svartárvirkjun í Þingeyjarsveit
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli háðar mati.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Svartárvirkjun í Þingeyjarsveit skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,105 Reykjavík.
Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 22. mars 2016.