Suðurstrandarlínur 1, 2 og 3, Sveitarfélaginu Ölfusi
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð lagning Suðurstrandarlína 1, 2 og 3 í Sveitarfélaginu Ölfusi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér ásamt greinargerð framkvæmdaraðila og umsögnum umsagnaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. nóvember 2023.