Stólalyfta í Hlíðarfjalli, Akureyri
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stólalyfta í Hlíðarfjalli, Akureyri skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má skoða hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. ágúst 2018.