Fréttir


29.5.2024

Stækkun Mjólkárvirkjunar, Ísafjarðarbæ

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun Mjólkárvirkjunar, Ísafjarðarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Hér má finna ákvörðun Skipulagsstofnunar, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim. 

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til og með 1. júlí 2024.