Staðfesting á breytingu á um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna landfyllingar á hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn
Skipulagsstofnun staðfesti 13. nóvember breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 27. júní 2024.
Í breytingunni felst að hafnarsvæði H3 er stækkað úr 11,9 ha í 12,9 ha með 9.300 m² landfyllingu sunnan Suðurvarargarðs. Landnotkunarreiturinn vötn, ár og sjór V1 minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/issues/2024/256) og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.