Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna verslunar og þjónustu á Dalbraut, Bíldudal
Skipulagsstofnun staðfesti 23. október 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 18. september 2024.
Í breytingunni felst skilgreining nýs tæplega 0,1 ha svæðis fyrir verslun og þjónustu VÞ16 en íbúðarbyggð ÍB14 minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.