Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps vegna iðnaðarsvæðis I2 við Gileyri
Skipulagsstofnun staðfesti 3. janúar 2024 breytingu á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2006-2018 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. nóvember 2023.
Í breytingunni felst að áformað er að framleiðsla seiðaeldisstöðvar á Gileyri verði aukin í allt að 1.000 tonna hámarkslífmassa og áætlað að eldisrými verði um 19.600 m3.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.