Fréttir


9.7.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna fjölgunar íbúða á miðsvæði M1, miðbæ Þorlákshafnar

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júlí 2024, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2023.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða á miðsvæði M1 úr 80 í 200 en M1 liggur miðsvæðis í Þorlákshöfn, er í nálægð við íbúðarbyggð og tengist einnig athafnasvæði og hafnarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.