Fréttir


22.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna verslunar og þjónustu í landi Skaftafells III-IV

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarráði 2. júlí 2024.

Í breytingunni felst að skipulagsákvæðum fyrir verslun og þjónustu (VÞ44) í landi Skaftafells III-IV verði breytt þannig að hámarksfjöldi gistihúsa verði allt að 70 í stað 35, hvert hús geti verið allt að 64 m2 í stað 40 m2 og hámarkshæð fari úr 1 hæð í 2 hæðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.