Fréttir


22.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna verslunar og þjónustu að Rauðabergi 2

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. júní 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á um 10 ha verslunar- og þjónustusvæði (VÞ48) að Rauðabergi 2. Gert er ráð fyrir hóteli og/eða gistihúsi með allt að 50 gistirúmum og starfsmannabústað.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.