Fréttir


27.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna frístundabyggðar í landi Sunnuhlíðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. júní 2024, breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. maí 2024.

Í breytingunni felst að skilgreint er nýtt 3,2 ha svæði fyrir frístundabyggð F12, landbúnaðarland L3 minnkar sem því nemur. Þegar eru tvö frístundahús á jörðinni en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í fjögur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.