Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Strandabyggðar vegna stækkunar íbúðarbyggðar við Kópnesbraut og Víkurtún, Hólmavík
Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júlí 2024, breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. febrúar 2024.
Í breytingunni felst framlenging íbúðarbyggðar við Kópnesbraut 0,2 ha til norðurs og stækka íbúðarbyggð við Víkurtún um 0,1 ha. Opið svæði O7 minnkar sem nemur stækkun við Víkurtún.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.