Fréttir


5.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna verslunar- og þjónustusvæðis á Stekkatúni

Skipulagsstofnun staðfesti 4.september 2024 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. febrúar 2024.

Í breytingunni felst breyting á landnotkun úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði VÞ36, 6,7 ha, í landi Stekkatúns með heimildum fyrir 12 gistihús og þjónustubyggingar með heildar byggingarmagn allt að 510 m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.