Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna verslunar og þjónustu í landi Háteigs, Þykkvabæ
Skipulagsstofnun staðfesti, 19. september 2024, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. ágúst 2024.
Í breytingunni felst skilgreining 0,2 ha svæðis fyrir verslun og þjónustu, landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.