Fréttir


9.7.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Háfshjáleigu 1-3.

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júlí 2024, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. mars 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á 6 ha svæði fyrir verslun og þjónustu, VÞ37, í landi Háfshjáleigu 1-3 vegna áforma um uppbyggingu fyrir ferðaþjónustu með gistingu fyrir allt að 75 gesti.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.