Fréttir


13.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Ytra-Seljalands, frístundabyggð F31

Skipulagsstofnun staðfesti 13. ágúst 2024 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. mars 2024.

Í breytingunni felst að gerð er breyting á afmörkun frístundabyggðar F31, en stærð þess helst óbreytt.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.