Fréttir


2.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna nýs skógræktarsvæðis í landi Butru

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2024.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um nýtt 25 ha skógræktar- og landgræðslusvæði (SL16) á landbúnaðarsvæði (L1) í landi Butru.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.