Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings Eystra 2020-2032 vegna breyttrar afmörkunar AF55 (tjaldsvæði) og þéttbýlismarka á Hvolsvelli
Skipulagsstofnun staðfesti 4. nóvember 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings Eystra 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. júlí 2024.
Í breytingunni felst að gerð er breyting á afmörkun svæðis fyrir tjaldstæði á Hvolsvelli (AF55) og það stækkað úr 5,2 í 5,4 ha. Landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur. Samhliða er gerð breyting á afmörkun þéttbýlisins.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.