Fréttir


21.5.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna breytingar á skipulagsákvæðum fyrir verslun- og þjónustusvæði VÞ13 og VÞ24 og athafnasvæði AT1

Skipulagsstofnun staðfesti 17. maí 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 19. október 2024.

Í breytingunni felst að hámarks byggingarmagn fyrir verslunar- og þjónustusvæði VÞ13 í Vík minnkar úr 4700 m2 í 1500 m2, gistirúmum er fjölgað úr 32 í 50 á verslunar- og þjónustusvæði VÞ24 við Hvammból, og hámarks byggingarmagn á athafnasvæði AT1 í Vík minnkar úr 6500 m2 í 2000 m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.