Fréttir


  • Námur, Miðfirði

3.7.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Langanesbyggðar vegna efnistöku í Miðfirði I og II

Skipulagsstofnun staðfesti 1. júlí 2020 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. maí 2020.

Breytingin felst í stækkun efnistökusvæða í Miðfirði I (N14) og Miðfirði II (N13).

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.