Staðfesting á breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna Mjólkárlínu 2
Skipulagsstofnun staðfesti, 14. september 2023, breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 sem samþykkt var í bæjarráði 17. júlí 2023.
Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um 16 km langan 66 kV jarðstreng, Mjólkárlínu 2, frá Mjólká að Hrafnseyri og þaðan með sæstreng yfir Arnarfjörð í átt að Bíldudal.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.