Fréttir


21.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar vegna verslunar- og þjónustusvæðis á norðurjaðri Hafnar

Skipulagsstofnun staðfesti 20. ágúst 2024 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. apríl 2024.

Í breytingunni felst að skilgreint er nýtt 3 ha verslunar- og þjónustusvæði á norðurjaðri þéttbýlis Hafnar við Hafnarbraut með byggingarheimildir fyrir allt að 31.000 m2 á einni til tveimur hæðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.