Fréttir


2.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar vegna íbúðarbyggðar ÍB5 á Höfn

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. apríl 2024.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar (ÍB5) í 13,4 ha að stærð úr 5,6 ha fyrir allt að 220 íbúðir af fjölbreyttum gerðum, einbýli, par- og raðhús og fjölbýlishús á allt að 3 hæðum við Hafnarbraut á Höfn.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.