Fréttir


28.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna lagningar hitaveitu

 

Skipulagsstofnun staðfesti 28. júní 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. maí 2024.

Breytingin gerir ráð fyrir lagningu hitaveituæðar frá Hjalteyri að sveitarfélagamörkum við Dalvíkurbyggð.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.