Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna íbúðarbyggðar, samfélagsþjónustu og breytinga á vegtengingum á Lónsbakka
Skipulagsstofnun staðfesti staðfesti, 11. nóvember 2024, breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 15. ágúst 2024.
Í breytingunni felst að nýtt 1,1 ha svæði fyrir íbúðarbyggð (ÍB2) er skilgreint meðfram Lónsá og opið svæði (OP1) og verslunar- og þjónustusvæði minnka til samræmis. Afmörkun íbúðarbyggðar á Lónsbakka breytist lítillega og er gefið auðkennið ÍB1 með breyttum skilmálum. Auk þess er svæði fyrir samfélagsþjónustu (S1) stækkað um 0,5 ha fyrir leikskóla og opið svæði (OP1) og íþróttasvæði (ÍÞ1) minnka til samræmis. Nýr aðkomuvegur tengir Lónsveg við verslunar- og þjónustusvæði (VÞ3) og vegtenging frá Sjafnargötu að Lónsvegi er felld út.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.