Fréttir


4.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna skipulagsmarka við Hrafnistu

Skipulagsstofnun staðfesti 4. júní 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. febrúar 2024.

Í breytingunni felst breyting á sveitarfélagsmörkum Hafnarfjarðarbæjar við samfélagsþjónustusvæði S1.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.