Fréttir


5.11.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna almennra ákvæða um afslætti af lóðarverðum

Skipulagsstofnun staðfesti 4 nóvember óverulega breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. október 2024.

Í breytingunni felst að almenn ákvæði um afslátt af lóðarverði vegna umhverfisvottunar verða felld út, en brugðist verður við afsláttum í gjaldskrá kauptúnsins.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.