Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar
Skipulagsstofnun staðfesti, 19. október 2018, breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020, sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. maí 2018.
Breytingin felst í að frístundabyggð F14a, Sólbrekka í landi Syðri-Brúar, stækkar um 2,5 ha til vesturs en opið svæði til sérstakra nota, golfvöllur, minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.