Fréttir


12.7.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna fjölgunar borhola í gufuaflsvirkjun í Króki, Folaldahálsi

Skipulagsstofnun staðfesti 11. júlí 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. júní 2024.

Í breytingunni felst fjölgun borhola innan iðnaðarsvæðis I2 á Folaldahálsi úr þremur í sex. Stærð svæðis og vinnslugeta virkjunar haldast óbreytt.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.