Fréttir


4.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna stækkunar frístundabyggðar F8 í landi Neðri-Áss, Hjaltadal

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. júní 2024, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035, sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. apríl 2024.

Í breytingunni felst að svæði fyrir frístundabyggð F8 í landi Neðri-Áss, Hjaltadal, stækkar úr 25,2 ha í 31,7 ha. Landbúnaðarsvæði L1 minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.