Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna Sauðárkrókskirkjugarðs
Skipulagsstofnun staðfesti 7. september 2023, breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í byggðarráði 31. júlí 2023.
Í breytingunni felst að Sauðárkrókskirkjugarður (K-401) er stækkaður til suðurs úr 4,0 ha í 5,4 ha. Stærð aðliggjandi opins svæðis (OP-405) (úr 90 ha í 89,5 ha) og afþreyingar- og ferðamannasvæðis (AF-401) (úr 9,4 ha í 8,5 ha) er breytt til samræmis.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.