Fréttir


4.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Skútustaðahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis í landi Sandabrota

Skipulagsstofnun staðfesti 3. september 2024 breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Skútustaðahrepps 2011-2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. maí 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á nýju verslunar- og þjónustusvæði (522-V) í landi Sandabrota fyrir 10 smáhýsi til útleigu ásamt einbýlishúsalóð. Heildarbyggingarmagn allt að 850 m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.