Fréttir


21.5.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Fljótsdalshéraðs vegna námu við Kárahnjúkastíflu

Skipulagsstofnun staðfesti 17. maí 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. apríl 2024.

Í breytingunni felst enduropnun 0,4 ha efnisnámu E190 við Kárahnjúkastíflu, með heimildum til efnistöku allt að 15.000 m3.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.