Fréttir


6.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Fljótdalshéraðs vegna frístundabyggðar á landi Úlfsstaða á Völlum, Múlaþing

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. september 2024, breytingu á Aðalskipulagi fyrrum Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. júní 2024.

Í breytingunni felst að marka stefnu um 4,5 ha frístundabyggð í landi Úlfsstaða á Völlum. Landbúnaðarland minnkar sem því nemur. Heimilt er að byggja allt að 10 frístundahús á samfelldu 10 hektara svæði að hámarki.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.