Fréttir


6.5.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna verslunar og þjónustu í landi Skógsness II

Skipulagsstofnun staðfesti 6. maí 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. september 2023.

Í breytingunni felst skilgreining á 1 ha verslunar- og þjónustureit til að ná utan um þyrpingu gestahúsa sem gert er ráð fyrir á landbúnaðarlandi í nýlegu deiliskipulagi.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.