Fréttir


13.11.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna sérákvæða íbúðarbyggðar ÍB22 í landi Krækishóla

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. nóvember 2024, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017 – 2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. júní 2024.

Í breytingunni felast heimildir fyrir fjölgun bygginga á íbúðarlóðum innan íbúðarbyggðar ÍB22 í landi Krækishóla.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.