Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017–2029 vegna breyttrar landnotkunar í landi Hnauss, Hnauss 2 og Mósatóar 4
Skipulagsstofnun staðfesti, 8. september 2023 breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017–2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn dags. 26. júní 2023.
Í breytingunni felst að frístundabyggð F16 og F16D og hluta skógræktarsvæðis SL6 í landi Hnauss, Hnauss 2 og Mosatóar 4 er breytt í landbúnaðarsvæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.