Fréttir


10.10.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna strand-, iðnaðar- og hafnarsvæðis á Eskifirði

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. október 2024, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. júní 2024.

Í breytingunni felst stækkun iðnaðarsvæðis I-201 um 0,6 ha og við það minnkar hafnarsvæði H-200 um 0,1 ha og strandsvæði ST-20 um 0,5 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.