Fréttir


14.10.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar vegna borholu við Ósbrekku í Ólafsfirði

Skipulagsstofnun staðfesti, 14. október 2024, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032, sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. september 2024.

Í breytingunni felst ný borhola við Ósbrekku í Ólafsfirði, merkt 169 I.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.