Fréttir


  • Héraðsreiðleið, Eyjafirði

17.3.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna héraðsreiðleiðar RH7

Skipulagsstofnun staðfesti 17. mars 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. maí 2021.

Í breytingunni felst breytt lega héraðsreiðleiðar RH7 í landi Brúna við Eyjafjarðarbraut eystri og Miðbraut.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda