Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna stækkunar frístundabyggðar í landi Skáldalækjar ytri
Skipulagsstofnun staðfesti, 4. nóvember 2024, breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 4. júlí 2024.
Í breytingunni felst annarsvegar breytingu á afmörkun frístundabyggðar (660-F) og hinsvegar stækkun svæðis úr 2,6 ha í 2,7 ha þar sem gert er ráð fyrir að fjölga lóðum fyrir frístundahús úr 4 í 7 í landi Skáldalækjar ytri. Landbúnaðarsvæði (613-L) minnkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga.
Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.