Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða
Skipulagsstofnun staðfesti, 29. júní 2022, breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. júní 2022.
Í breytingunni felst að um 419 ha landbúnaðarsvæði í landi Hróðnýjarstaða er breytt í iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver fyrir vinnslu allt að 130 MW. Svæðið er jafnframt skilgreint sem varúðarsvæði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.