Fréttir


6.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna verslunar- og þjónustusvæðis í landi Signýjarstaða

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. september 2024 breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í byggðaráði 18. júlí 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á 5 ha verslunar- og þjónustusvæði (VÞ13) og samsvarandi minnkun frístundabyggðar (F108). Heimiluð verður gististarfsemi með allt að 20 gistirúmum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.